Lífið

Óli Palli ætlar að horfa á Stöð 2 í kvöld

Jakob Bjarnar skrifar
Óli Palli ásamt þeim Siggu Lund og Sigvalda Kaldalóns í Bylgjulestinni fyrir nokkrum árum. Hann ætlar ekki að horfa á Eurovision í kvöld.
Óli Palli ásamt þeim Siggu Lund og Sigvalda Kaldalóns í Bylgjulestinni fyrir nokkrum árum. Hann ætlar ekki að horfa á Eurovision í kvöld. vísir/hulda margrét

Það er Eurovision í kvöld, Hera Björk stígur á stokk en víst er að afstaða Ríkisútvarpsins, að taka þátt þrátt fyrir að Ísrael sé með, hefur sett margan starfsmanninn í bobba.

Einhver grjótharðasti RÚV-ari sem um getur, Óli Palli, ætlar ekki að horfa heldur fylgjast með samstöðutónleikum sem verða í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld.

„Við foreldrar og skólinn kennum börnunum okkar að allir eigi að fá að vera með í leik og engan eigi að skilja útundan. Það er bannað að meiða og segja ljótt og einelti er ekki í boði. Á sama tíma mætum við og tökum þátt í söngvakeppni með mesta og hræðilegasta hrekkjusvíninu – ekki bara í bekknum eða skólanum – heldur í öllum heiminum.“

Svo hefst pistill Ólafs Páls Gunnarssonar, Óla Palla útvarpsmanns á Rás 2, en hann hefur horft á Eurovison með báðum augum og hlustað með báðum eyrum í næstum hálfa öld. En hann mun ekki fylgjast með Eurovison á neinn hátt í ár.

Óli Palli segir að hrekkjusvínið sem hann nefndi sé ekki í því að skilja út undan eða leggja í einelti, það sé hreinlega að drepa börn í þúsundavís með sprengjum. „Hrekkjusvínið er búið að smala fórnarlömbum sínum út í horn og er svo að gera sig klárt í blóðbað og barna og þjóðarmorð.“

Skilaboðin frá okkur fullorðna fólkinu séu því þessi eða ef hrekkjusvínið er mjög stórt og sterkt þá er bara best að leyfa því að gera það sem það vill og kýs – annars gætum við sjálf lent í vandræðum. Óli Palli vitnar í Gísla Martein Baldursson kollega sinn á RÚV sem sagði að Eurovision snerist um stemmningu og gleði. En hann finndi fyrir hvorugu. Óli Palli leyfir sér að taka undir þau orð:

„Það eru samstöðutónleikar í Háskólabíó í kvöld fyrir börnin og fólkið á Gaza sem ég ætla að fylgjast með í kvöld og styrkja.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×